Sóley Natura Spa

Þegar gengið er inn á Sóley Natura Spa blasir við heill heimur út af fyrir sig en að baki heilsulindinni býr sú hugmynd að fólk geti nært í senn anda og líkama undir sama þaki, án alls utanaðkomandi áreitis.

 
Í Sóley Natura Spa er boðið upp á margar af mest spennandi fegurðar- og nuddmeðferðum landsins, ásamt jóga og hugleiðslu, líkamsskrúbbi og ótal mörgu öðru.
 

Opið er í Sóley Natura Spa sem hér segir:

Mán. – Fös: 07:00 – 21.00
Lau: 08:00 – 20.00
Sun: 12.00 – 18.00

Athugið að hætt er að hleypa inn í heilsulindina 30 mínútum fyrir lokun.