Tímar & námskeið

Ein af hugsjónum okkar í Sóley Natura Spa er að bjóða upp á andlega og líkamlega þjálfun í bland við þá næringu, slökun, kyrrð og ró sem hægt er að njóta innan veggja heilsulindarinnar. Úrval jóganámskeiða eru skýrasta dæmið um það, en orðið jóga - sem er fimm þúsund ára gamalt kerfi lífsreglna - merkir sameining. Í jóga eru m.a. gefnar leiðbeiningar um líkamsæfingar og hugleiðslu í því skyni að sameina anda og líkama, og auðvitað kyrra hugann líka. 
 
Í jóganu er heilsustef okkar fólgið, þótt mörg önnur tilbrigði verði við það stef.
 

Sjálfsagt er á fáum stöðum að finna fjölbreyttara jóga en í hjá okkur í Sóley Natura Spa.  Alls er boðið upp á sextán jógatíma í hverri viku, alla daga nema sunnudaga með sjö frábærum og reyndum jógakennurum.

Hádegisjóga  er 3 daga vikunnar.  kl. 12.00 mánudaga og þriðjudaga og kl. 12.05 fimmtudaga.

Morgunjógað er þrisvar í vku - mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Kl. 8:30 - 9:30. Selma leiðir þessa æðislegu tíma.


Sjá nánar um áherslur okkar í jóga HÉR