Snyrtistofa

Snyrtistofan býður upp á alla almenna snyrtistofuþjónustu. Má þar nefna andlitsböð, litanir, vaxmeðferðir, jurtatattú, handsnyrtingu auk fótaaðgerða.
 
Ýmsar tegundir af nuddi eru í boði, þar á meðal hið margrómaða heitsteinanudd.
 
Snyrtifræðimeistararnir okkar búa yfir áralangri reynslu, og hafa sérhæft sig í lífrænum andlits- og líkamsmeðferðum með Sóley vörunum og notast að auki við kraft úr handtíndum íslenskum jurtum.
 
Meðferðirnar eru sérhannaðar með hámarks þægindi og munað í huga, og hafa þá sérstöðu að vera einungis í boði á snyrtistofunnar á Sóley Natura Spa.